Föstudaginn 14. desember ver Kristín Guðmundsdóttir doktorsritgerð sína í sálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Snemmtæk íhlutun dreifbýlisbarna með fjarþjónustu sérfræðinga: Mat á áhrifum foreldraþjálfunar á færni barns og fjölskyldu. Rural Behavioral Consultation: An Analysis of the Effects of Caregiver Training via Telehealth on Child and Family Progress.
Andmælendur eru dr. Jennifer McComas, prófessor við University of Minnesota, og dr. Stephen Gallagher, lektor og forstöðumaður við University of Ulster, Norður-Írlandi.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, prófessor við Sálfræðideild, og Shahla Alai-Rosales, dósent við Department of Behavior Analysis, University of North Texas. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Guðmundur Ágúst Skarphéðinsson, dósent við Sálfræðideild, Lise Roll-Pettersson, prófessor við Háskólann í Stokkhólmi, og Aksel Tjora, prófessor við NTNU-háskóla, Þrándheimi.
Daníel Þór Ólason, prófessor og forseti Sálfræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.
Ágrip af rannsókn
Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að meta með tilraunasniði áhrif þess að kenna foreldrum dreifbýlisbarna með einhverfu, í gegnum fjarfund, gagnreyndar aðferðir atferlisgreiningar til að auka tjáskipta- og félagsfærni barna þeirra í dagsins önn. Að auki var tilgangur rannsóknarinnar að afla ítarlegra upplýsinga frá foreldrunum um gagnsemi þjálfunaraðferðanna og fjarráðgjafarinnar.
Þátttakendur í rannsókninni voru fimm fjölskyldur, þ.e. foreldrar og ung börn þeirra með einhverfu, auk sérkennara eins barnsins. Tilraun með einliðasniði (e. single-subject experimental design) var gerð til þess að meta áhrif fjarþjálfunarinnar á færni og hegðun þátttakenda. Íhlutunin í rannsókninni fólst í íslenskri útgáfu af foreldraþjálfun sem nefnist Byrjum sólarmegin (e. Sunny Starts) og var þróuð við University of North Texas. Auk tilraunasniðsins var félagslegt réttmæti tilraunanna kannað með eigindlegum viðtölum við foreldrana um gagnsemi íhlutunarinnar og niðurstöður.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að með þjálfun umönnunaraðilanna í gegnum fjarfund jókst kennslufærni þeirra sem aftur hafði jákvæð áhrif á tjáskipta- og félagsfærni barnanna. Niðurstöðurnar bæta við og staðfesta niðurstöður fyrri rannsókna á þessu sviði. Þá lýstu umönnunaraðilarnir breytingum í fari barna sinna sem voru í samræmi við niðurstöður tilraunanna auk þess sem þeir ræddu kosti og galla fjarráðgjafar og kennslu.
Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að foreldraþjálfun í gegnum fjarfund sé vænlegur valkostur fyrir fjölskyldur sem hafa takmarkaðan aðgang að gagnreyndri snemmtækri íhlutun í heimabyggð og nauðsynlegri sérfræðiþekkingu á því sviði. Hins vegar er frekari rannsókna þörf.
Um doktorsefnið
Kristín Guðmundsdóttir er fædd árið 1970 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1990, BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og MS-prófi í atferlisgreiningu frá University of North Texas árið 2002. Kristín hlaut sérfræðivottun í atferlisgreiningu (BCBA) árið 2003. Að loknu námi starfaði Kristín við atferlismeðferð einhverfra barna í Texas og hefur sinnt kennslu og ráðgjöf við börn með sérþarfir í íslensku skólakerfi, m.a. við Skólaskrifstofu Austurlands. Kristín er lektor í sálfræði við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri og hefur starfað þar síðan 2006. Kristín er dóttir Guðrúnar Þorbjarnardóttur og Guðmundar Sigurðssonar læknis, sem lést árið 2016.