Um RÍA

Rannsóknastofa í atferlisgreiningu er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á fræðasviðum atferlisgreiningar. Stofan heyrir undir Sálfræðistofnun Háskóla Íslands og hefur það að markmiði að auka rannsóknir á atferlisgreiningu og gera þær sýnilegar.

Helstu hlutverk stofunnar eru m.a. að stuðla að fræðslu, sinna rannsóknum og þjónustuverkefnum, hafa samstarf við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir og fræðimenn, veita nemum í rannsóknanámi aðstöðu og búnað til rannsóknastarfa, sem og þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum. 

Stofan skipuleggur ýmsa viðburði til að miðla niðurstöðum rannsókna taka þátt í almennri umræðu. Má þar nefna fræðileg námskeið, fyrirlestra, málþing og ráðstefnur. 

Rannsóknastofa í atferlisgreiningu var stofnuð árið 2012. Forstöðumaður er dr. Zuilma Gabriela Sigurðardóttir, dósent við Sálfræðideild Háskóla Íslands. 

 

                               

                              

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is