Kristín Guðmundsdóttir ver doktorsritgerð sína í sálfræði

Föstudaginn 14. desember  ver Kristín Guðmundsdóttir doktorsritgerð sína í sálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Snemmtæk íhlutun dreifbýlisbarna með fjarþjónustu sérfræðinga: Mat á áhrifum foreldraþjálfunar á færni barns og fjölskyldu. Rural  Behavioral Consultation: An Analysis of the Effects of Caregiver Training via Telehealth on Child and Family Progress.

Andmælendur eru dr. Jennifer McComas, prófessor við University of Minnesota, og dr. Stephen Gallagher, lektor og forstöðumaður við University of Ulster, Norður-Írlandi.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, prófessor við Sálfræðideild, og Shahla Alai-Rosales, dósent við Department of Behavior Analysis, University of North Texas. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Guðmundur Ágúst Skarphéðinsson, dósent  við Sálfræðideild, Lise Roll-Pettersson, prófessor  við Háskólann í Stokkhólmi, og Aksel Tjora, prófessor við NTNU-háskóla, Þrándheimi.

Daníel Þór Ólason, prófessor og forseti Sálfræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.

Ágrip af rannsókn

Meginmarkmið þessarar rannsóknar  var  að  meta  með  tilraunasniði  áhrif  þess að  kenna foreldrum dreifbýlisbarna  með  einhverfu, í gegnum fjarfund, gagnreyndar aðferðir atferlisgreiningar til að auka tjáskipta- og félagsfærni barna þeirra í dagsins önn. Að  auki var tilgangur rannsóknarinnar  að  afla ítarlegra upplýsinga frá foreldrunum um gagnsemi þjálfunaraðferðanna og fjarráðgjafarinnar.

Þátttakendur í rannsókninni voru fimm fjölskyldur, þ.e. foreldrar og ung börn þeirra með einhverfu, auk sérkennara eins barnsins. Tilraun  með  einliðasniði  (e.  single-subject  experimental design) var  gerð  til  þess  að  meta  áhrif  fjarþjálfunarinnar  á færni og hegðun þátttakenda.  Íhlutunin   í rannsókninni   fólst   í   íslenskri   útgáfu   af foreldraþjálfun sem nefnist Byrjum sólarmegin (e.  Sunny Starts) og var þróuð við  University  of  North  Texas.  Auk  tilraunasniðsins  var  félagslegt  réttmæti tilraunanna  kannað  með  eigindlegum  viðtölum  við  foreldrana  um  gagnsemi íhlutunarinnar og niðurstöður.

Niðurstöður  rannsóknarinnar sýndu  að  með  þjálfun umönnunaraðilanna  í  gegnum  fjarfund  jókst  kennslufærni  þeirra  sem aftur hafði jákvæð áhrif á tjáskipta- og félagsfærni barnanna. Niðurstöðurnar bæta við og staðfesta niðurstöður fyrri rannsókna á þessu sviði. Þá lýstu umönnunaraðilarnir breytingum í fari barna sinna sem voru í samræmi við niðurstöður tilraunanna auk þess sem þeir ræddu kosti og galla fjarráðgjafar og kennslu. 

Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að foreldraþjálfun í gegnum fjarfund sé vænlegur valkostur fyrir fjölskyldur sem hafa takmarkaðan aðgang  að  gagnreyndri  snemmtækri  íhlutun  í  heimabyggð  og  nauðsynlegri sérfræðiþekkingu á því sviði. Hins vegar er frekari rannsókna þörf.

Um doktorsefnið

Kristín Guðmundsdóttir er fædd árið 1970 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi  frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1990, BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og  MS-prófi í atferlisgreiningu frá University of North Texas árið 2002. Kristín hlaut sérfræðivottun í atferlisgreiningu (BCBA) árið 2003. Að loknu námi starfaði Kristín við atferlismeðferð einhverfra barna í Texas og hefur sinnt kennslu og ráðgjöf við börn með sérþarfir í íslensku skólakerfi, m.a. við Skólaskrifstofu Austurlands. Kristín er lektor í sálfræði við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri og hefur starfað þar síðan 2006. Kristín er dóttir Guðrúnar Þorbjarnardóttur og Guðmundar Sigurðssonar læknis, sem lést árið  2016. 

 

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is