Vinna saman gegn slysum barna í innkaupakerrum

Rannsóknastofa í atferlisgreiningu við Háskóla Íslands og Sjóvá hafa hleypt af stokkunum átaksverkefni sem ætlað er að vekja fólk til vitundar um þá hættu sem stafar af því að setja börn ofan í vöruhluta  innkaupakerra. Spjöldum verður komið fyrir í innkaupakerrum í völdum verslunum til þess að minna foreldra á hættuna sem fylgir þessu. 

Átakið byggist á rannsókn sem Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, dósent í í atferlisgreiningu og atferlismeðferð við Sálfræðideild Háskóla Íslands, og nemendur hennar gerðu fyrir nokkrum árum. Markmiðið var að kanna hvort hægt  væri að koma í veg fyrir að foreldrar settu börn sín ofan í vöruhluta innkaupakerrunar með tilheyrandi slysahættu. Það þarf lítið til að kerran velti þegar börn standa í innkaupakerrum og þannig hafa mörg börn slasast. Alvarlegir áverkar hafa orðið á börnum vegna fallslysa úr innkaupakerrum en kerrurnar geta líka farið á hvolf eða hliðina og börnin lent undir þeim.   

Í rannsókn Zuilmu og nemenda hennar var sérstöku spjaldi með mynd af barni í innkaupakerru innan í rauðum hring með bannmerki (líkt og í umferðarmerki) komið fyrir í innkaupakerrum fjögurra verslana á höfuðborgarsvæðinu. Á spjaldinu stóð jafnframt:  „Vinsamlegast setjið börn ekki ofan í innkaupakerrurnar“. Fylgst var með viðskiptavinum með börn bæði áður en spjöldin voru sett í kerrurnar, á meðan spjöldin voru í kerrunum og eftir að þau höfðu verið fjarlægð og  kannað hvort spjöldin hefðu áhrif á hegðun foreldra. Í ljós kom að mun færri foreldrar settu börn sín í kerrurnar þegar spjaldið var í þeim en á samanburðartímabilunum. Þetta bendir til þess að merkingin hafi haft áhrif á þessa hegðun. 

Niðurstaða rannsóknarinnar vakti athygli Sjóvár og því var ákveðið að útbúa sams konar spjöld og notuð voru í rannsókninni. Þau hafa verið og verða sett í kerrur í verslun Krónunnar á næstunni. Markmiðið er að vekja foreldra til vitundar um þá slysahættu sem skapast þegar börn eru sett í innkaupakerrur og um leið að draga úr slíkum slysum. Í framhaldinu verður unnið að því að  koma upp samskonar spjöldum í innkaupakerrum fleiri verslunum.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is