Bakgrunnur

Uppeldisnámskeiðið SOS! Hjálp fyrir foreldra er eftir bandaríska sálfræðinginn dr. Lynn Clark. Aðferðin byggir á yfir 40 ára rannsóknum í atferlisgreiningu og sálfræði. 

Dr. Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, sálfræðingur og námsfræðingur, stóð fyrir því að námskeiðið var þýtt yfir á íslensku og hóf hún að kenna það hérlendis árið 1998, í samvinnu Ágústu Ingvarsdóttur, núverandi sálfræðing en þáverandi eiganda fyrirtækisins Vitund ehf. 

Árið 2000 keypti Sálfræðideild Háskóla Íslands íslenska réttinn að námskeiðinu og voru námskeiðin hýst hjá Félagsvísindastofnun. Fjölmörg námskeið hafa verið haldin um allt land undir stjórn Zuilmu Gabrielu Sigurðardóttur. Mörg sveitarfélög hafa styrkt foreldra til þátttöku á námskeiðunum, svo sem Reykjanesbær, Sveitarfélagið Garður, Grundarfjörður, Garðabær, Fjarðabyggð, Sveitarfélagið Vogar, Sandgerðisbær og Vestmannaeyjabær. Námskeiðin hafa einnig verið haldin á Akureyri, Akranesi, Höfn, í Borgarnesi, Kópavogi og í Reykjavík. Námskeiðin hafa verið hýst hjá Sálfræðistofnun, eða Rannsóknastofu í atferlisgreiningu, síðan haustið 2012 og er stofan með einkarétt á íslenska efninu.

Markmið
Meginmarkmið námskeiðsins er að hjálpa foreldrum að bæta hegðun barna sinna og veita árangursrík fyrirmæli. Kenndar eru margvíslegar aðferðir til þess, sem allar byggja á lögmálum náms. Það má segja að grunnlögmálið sé að sýna barninu athygli þegar það sýnir góða hegðun, styrkja þannig æskilegu hegðunina og auka líkurnar á að tíðni jákvæðrar hegðunar aukist og á sama tíma að tíðni óæskilegrar hegðunar minnki.

Auk þess að styrkja æskilega hegðun, er óæskileg hegðun hunsuð og notaðar  mildar refsingar þegar barnið brýtur af sér og sýnir hegðun sem er hættuleg eða andfélagsleg. Það er gert með því að fjarlægja eitthvað sem barninu þykir eftirsóknarvert, t.d. leikfang eða tölvu, eða neita því um athygli og samveru með foreldrum í  afmarkaðan tíma (hlé, time-out), t.d. 2 mínútur.

SOS-Hjálp fyrir foreldra leggja áherslu á jákvæða styrkingu hegðunar með því að kenna foreldrum mikilvægi þess að fylgjast vel með börnum sínum, sýna þeim athygli, verja með þeim tíma í leik, spjalli, hvíld og almenna samveru, tjá þeim ást og hrifningu reglulega og vera góðar fyrirmyndir fyrir börnin sín. Námskeiðin kenna foreldum hvers vegna þetta allt er mikilvægt og hver verður útkoman af því að „grípa börnin þegar þau eru góð“. 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is